Hér blogga saman Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þórunn Tómasdóttir um samfélag, trú, mat og drykk, fjölskyldur, ástina, lífið – hvaðeina sem snertir mannlega tilvist. Þetta blogg er ferðalag sem við leggjum upp í saman, mót framtíð sem ber með sér spennandi áskoranir og tækifæri. Við bjóðum þér að slást í för og leggja orð í belg, taka þátt í samræðunni.
Okkur finnst gaman að nálgast hluti og hugsanir með öðru móti en venjan er og að virða þá fyrir okkur í nýju ljósi. Forvitni og innlifun gagnast vel í lífinu og gerir okkur hæfari til að njóta þess fallega og takast á við hið óvænta. Þess vegna viljum við usla því hvernig talað er um samfélag, trú, mat og drykk, fjölskyldur, ástina og lífið. Við trúum því að það leiði okkur á nýjar og frjósamar lendur.
Við
- erum hjón.
- eigum sex börn. Þau eiga öll heimili hjá okkur og fimm þeirra dvelja líka hjá hinum foreldrum sínum.
- höfum lesið guðfræði á Íslandi, í Svíþjóð og í Bandaríkjunum.
- erum prestar og störfum fyrir þjóðkirkjuna.
- höfum óslökkvandi áhuga á mannlífinu.
- erum guðfræðingar.
- elskum lífið.
