Verkefnin okkar

Við skrifum reglulega greinar í dagblöð og vefmiðla.

Við höfum líka sinnt nokkrum skemtilegum verkefnum upp á síðkastið. Þessi eru okkur hugleikin núna.

Biskupskjör 2012

Í aðdraganda biskupskjörs árið 2012 settum við upp yfirlitssíðu með vísunum á fréttir og pistla um biskupskjör og kirkju á Íslandi. Hún verður uppfærð meðan á kjörinu stendur og nýtist til að fá yfirlit á einum stað. Við settum líka upp yfirlitssíðu fyrir síðari umferðina. 25. apríl varð svo ljóst að Agnes Sigurðardóttur verður næsti biskup Íslands.

Að vænta vonar – jóladagatal 2010

Að vænta vonar er jóladagatal þjóðkirkjunnar 2010. Það samanstendur af 24 stuttum myndböndum sem voru frumsýnd á aðventu. Á hverjum degi frá 1.-24. desember var eitt myndband sett á YouTube og deilt á Facebook. Þema dagatalsins var von og á hverjum degi deildu vonarberar með okkur sínum skilaboðum.

Ellefta heimsþing Lútherska heimssambandsins

Lútherska heimssambandið hélt sitt ellefta heimsþing í Stuttgart í júlí 2010. Árni tók þátt í því sem starfsmaður sambandsins og Kristín sem einn af fulltrúum þjóðkirkjunnar á þinginu. Hlutverk Árna var að ritstýra myndböndum á ensku. Afraksturinn er að finna á YouTube síðu sambandsins. 

Ein kirkja – ein hjúskaparlög

Ný hjúskaparlög tóku gildi í júní 2010. Við tókum þátt í herferð í félagsmiðlum sem tengdist þessu efni og setti fingurin á opna kirkju þar sem allir finna sig velkomna. Á vef átaksins er að finna greinar og yfirlýsingar og stutt myndbönd þar sem prestar lýsa stuðningi við hjúskaparlögin og tjá samstöðu með hommum og lesbíum í kirkjunni. Kenningarnefnd þjóðkirkjunnar og kirkjuþingið komu að því að afgreiða ein hjúskaparlög í kirkjunni.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>