Velkominn

Morgunbæn á Rás 1, fimmtudaginn 15. janúar.

Góðan dag kæri hlustandi.

Ég vona að nóttin hafi verið þér góð og að þú hafir vaknað vel í dag.

Hvað leitar á hugann á morgnana? Eru það verkefni dagsins? Væntingarnar til hans? Hvað vilt þú að komi út úr þessum degi? Hvað langar þig að upplifa í dag? Hvernig vilt þú mæta öðrum og hvernig viltu að aðrir mæti þér?

Mig langar að lesa fyrir þig söguna af því þegar Jesús mætti tveimur bræðum í fyrsta sinn. Það eru þeir Pétur og Andrés sem hann hitti við Galíleuvatn:

Jesús gekk með fram Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið en þeir voru fiskimenn. Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér og mun ég láta ykkur menn veiða.“ Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum. Matt 4.18-25

Hann bað þá að fylgja sér. Bauð þá velkomna í hópinn og fól þeim verkefni. Eins biður hann okkur að fylgja sér. Og felur okkur verkefni. Hvert er verkefnið? Að gera heiminn örlítið betri í dag en hann var í gær, með nærveru, með tengslum við annað fólk. Með því að vera við. Eins og við erum. Ein leið til þess er að brosa til fólksins sem þú mætir í dag, hvort sem þú þekkir þau eða ekki.

Í dag óska ég þér þess að þú finnir þig velkominn hvarvetna sem þú kemur. Í dag óska ég þér þess að þú látir aðra finna sig velkomna þegar þeir koma til þín.

Við skulum biðja saman:

Góði Guð,
hjálpaðu mér að skilja hvernig annað fólk er
bara alveg eins og ég
og bera virðingu fyrir því.
Hjálpaðu mér að skilja hvernig annað fólk
er öðruvísi en ég
og bera virðingu fyrir því.

Við skulum fara saman með bænina sem Jesús kenndi okkur:

Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Og eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu.
Amen.

Nú höldum við út í daginn, megi æðruleysi, kjarkur og vit, leiðbeina þér í önnum og áskorunum.