![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1710.jpg?w=292&h=270&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1711.jpg?w=200&h=133&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1713.jpg?w=200&h=133&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1719.jpg?w=175&h=117&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1728.jpg?w=175&h=90&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1785.jpg?w=317&h=211&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1777.jpg?w=169&h=113&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Skiltin við kirkjudyr.](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_4562.jpg?w=150&h=113&ssl=1)
![Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015 Meðmælaganga með trúfrelsi 1. mars 2015](https://i0.wp.com/arniogkristin.is/wp-content/uploads/2015/03/IMG_1793.jpg?w=169&h=113&ssl=1)
Það var ótrúlega gaman að ganga með Breytendum á Adrenalíni til að mæla með trúfrelsi á Íslandi. Við gengum frá Frú Laugu í Laugarneskirkju. Þar kynnti einn Breytandinn starfið stuttlega og svo tóku fulltrúar trúar- og lífsskoðanafélaga til máls. Inn á milli ávarpanna var flutt tónlist. Elín Sif og Ragnhildur fluttu lagið Í kvöld sem við heyrðum síðast á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar. Hljómsveitirnar Helíum og Neon stigu á stokk og fluttu flotta tónlist, meðal annars lagið Take me to church sem hefur notið mikilla vinsælda.
Í ávörpum fengum við að kynnast ólíkum sjónarhornum á trúfrelsið, m.a. að trúfrelsi snerist um frelsið til að vera látinn í friði, frelsi frá fordómum og um gestrisni og örlæti. Upp úr stendur þó hvað unglingarnir sem starfa í Laugarneskirkju eru magnaðir að skipuleggja svona glæsilegan viðburð.
Okkur taldist til að meðmælendurnir í gær hafi verið um 100 talsins. Það veit á gott.
Ps. Viltu skoða fleiri myndir frá göngunni?